8 ára gítarsnillingur slær í gegn

Zoe Thomson (t.h.) á gítarnum með hljómsveitinni The Mini Band. stækka

Zoe Thomson (t.h.) á gítarnum með hljómsveitinni The Mini Band. mbl.is

Átta ára bresk stúlka hefur slegið í gegn á netinu með snilldarlegum gítarleik sínum. Zoe litla Thomson hikar ekki við að taka gítarsóló þungarokkssveita á borð við Stratovarius og Metallica.

Thomson, sem er frá bænum Thatcham, sést á myndbandi á YouTube m.a. láta fingurna leika fimlega um strengi rafmagnsgítarsins í laginu Stratosphere með finnsku þungarokkssveitinni Stratovarius en gítarspilið í því lagi þykir sérlega flókið.

Thomson er ekki óvön sviðsljósinu, fyrir ári vakti hún mikla athygli með barnasveitinni The Mini Band. Sveitin varð vinsæl fyrir að flytja lagið Enter Sandman með Metallica en meðlimir The Mini Band eru aðeins 8-10 ára.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Tókst að góma flóttamörgæsina 337

Mörgæsin var á flótta í tvo mánuði.
25.5. Ársgömul mörgæs sem flúði Sædýrasafnið í Tókýó hefur loks náðst. Í mars tókst henni að henni flýja með því að klifra yfir vegg og renna sér síðan undir girðingu. Meira »

Er elst Íslendinga

Guðríður Guðbrandsdóttir á heimili sínu í Fururgerði 1.
23.5. Guðríður Guðbrandsdóttir er elst Íslendinga og heldur upp á 106 ára afmæli sitt í dag. Guðríður býr í þjónustuíbúð fyrir aldraða í Reykjavík og er vel ern. Hún fer alltaf í hádegismat og í leikfimi tvisvar í viku. Meira »

Bara tvær flugur á almenningssalerni

Frá Torgi hins himneska friðar í Peking
24.5. „Aðeins mega tvær flugur finnast inni á hverju almenningssalerni“ segir í nýútgefnum reglum yfirvalda í Peking.   Meira »

Tekist á um kynfæri Zuma

Myndin The Spear eftir suður-afríska listamanninn Brett Murray hefur vakið hörð viðbrögð en á myndinni ...
22.5. Tveir menn sáust á mynd vinna skemmdarverk málverki af forseta Suður-Afríku, Jacob Zuma, en á myndinni sést hann stilla sér upp sem Lenín með kynfærin úti. Tekist er á um myndina fyrir dómi í Suður-Afríku en flokkur forsetans er ósáttur við myndina. Meira »

finnur.is