Gleymdist í einangrun í tvö ár

Stephen Slevin var í haldi í 22 mánuði, án dóms. stækka

Stephen Slevin var í haldi í 22 mánuði, án dóms. mbl.is

Lögregluyfirvöld í Nýju Mexíkó handtóku mann vegna gruns um ölvunarakstur árið 2005 og gleymdu honum svo í einangrun án réttarhalda, í tvö ár. Manninum hafa nú verið dæmdar háar skaðabætur eða 22 milljónir dollara.

Stephen Slevin var handtekinn árið 2005 í Dona Ana-sýslu í Nýju Mexíkó í Bandaríkjunum.

Hann var kærður fyrir að aka stolnu ökutæki, aka undir áhrifum og með áfengi við hönd, án ökuréttinda.

En málið var aldrei tekið fyrir og það var ekki fyrr en í júní 2007, 22 mánuðum eftir handtökuna, að dómari komst að þeirri niðurstöðu að Slevin væri ekki hættulegur og honum sleppt úr haldi.

Í frétt Sky fréttastofunnar er haft eftir lögmanni Slevin að honum hafi verið varpað í fangelsi til þess að „rotna“.

Á meðan hann var í haldi var honum m.a. gert að rífa sjálfur úr sér skemmda tönn, þar sem honum var meinað að fara til tannlæknis.

Enginn getur haldið því fram að Slevin hafi alla tíð verið fyrirmyndarborgari en sakaskrá hans nemur 26 blaðsíðum, segir saksóknari sýslunnar sem ætlar að áfrýja niðurstöðu dómarans.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Tókst að góma flóttamörgæsina 337

Mörgæsin var á flótta í tvo mánuði.
25.5. Ársgömul mörgæs sem flúði Sædýrasafnið í Tókýó hefur loks náðst. Í mars tókst henni að henni flýja með því að klifra yfir vegg og renna sér síðan undir girðingu. Meira »

Er elst Íslendinga

Guðríður Guðbrandsdóttir á heimili sínu í Fururgerði 1.
23.5. Guðríður Guðbrandsdóttir er elst Íslendinga og heldur upp á 106 ára afmæli sitt í dag. Guðríður býr í þjónustuíbúð fyrir aldraða í Reykjavík og er vel ern. Hún fer alltaf í hádegismat og í leikfimi tvisvar í viku. Meira »

Bara tvær flugur á almenningssalerni

Frá Torgi hins himneska friðar í Peking
24.5. „Aðeins mega tvær flugur finnast inni á hverju almenningssalerni“ segir í nýútgefnum reglum yfirvalda í Peking.   Meira »

Tekist á um kynfæri Zuma

Myndin The Spear eftir suður-afríska listamanninn Brett Murray hefur vakið hörð viðbrögð en á myndinni ...
22.5. Tveir menn sáust á mynd vinna skemmdarverk málverki af forseta Suður-Afríku, Jacob Zuma, en á myndinni sést hann stilla sér upp sem Lenín með kynfærin úti. Tekist er á um myndina fyrir dómi í Suður-Afríku en flokkur forsetans er ósáttur við myndina. Meira »

finnur.is