Kókaín í höfuðstöðvum SÞ

Kókaín í plastpookum. Úr safni. stækka

Kókaín í plastpookum. Úr safni. mbl.is/Reuters

Sextán kíló af kókaíni fundust í poka merktum Sameinuðu þjóðunum í höfuðstöðvum stofnunarinnar í New York. Efnin voru send þangað frá Mexíkó með DHL-hraðþjónustunni.

Í frétt Sky fréttastofunnar segir að fíkniefnin hafi að öllum líkindum verið í eigu mexíkóskra fíkniefnasala og fyrir mistök verið send í höfuðstöðvar SÞ.

Pokarnir sem voru eftirlíkingar af pokum SÞ, vöktu strax athygli við komuna í höfuðstöðvarnar. Á þeim var ekkert heimilisfang og ekkert nafn á sendanda. Pokarnir voru engu að síður sendir til SÞ af starfsmönnum DHL vegna þess að merki stofnunarinnar var prentað á þá.

Starfsmenn Sameinuðu þjóðanna njóta margir hverjir diplómatískra réttinda og innihald sérstakra sendingapoka stofnunarinnar ekki skoðað af yfirvöldum með sama hætti og annar póstur.

Starfsfólk SÞ var þó fljótt að átta sig á að eitthvað gruggugt væri á ferðinni og er pokarnir voru opnaðir komu í ljós bækur sem búið var að hola að innan og voru fullar af kókaíni.

„Einhver í Mexíkó er í miklum vandræðum núna,“ er haft eftir lögreglustjóranum sem fór með málið í New York.

SÞ hafa gefið út þá yfirlýsingu að enginn starfsmaður stofnunarinnar liggi undir grun um innflutning efnanna.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Tókst að góma flóttamörgæsina 337

Mörgæsin var á flótta í tvo mánuði.
25.5. Ársgömul mörgæs sem flúði Sædýrasafnið í Tókýó hefur loks náðst. Í mars tókst henni að henni flýja með því að klifra yfir vegg og renna sér síðan undir girðingu. Meira »

Er elst Íslendinga

Guðríður Guðbrandsdóttir á heimili sínu í Fururgerði 1.
23.5. Guðríður Guðbrandsdóttir er elst Íslendinga og heldur upp á 106 ára afmæli sitt í dag. Guðríður býr í þjónustuíbúð fyrir aldraða í Reykjavík og er vel ern. Hún fer alltaf í hádegismat og í leikfimi tvisvar í viku. Meira »

Bara tvær flugur á almenningssalerni

Frá Torgi hins himneska friðar í Peking
24.5. „Aðeins mega tvær flugur finnast inni á hverju almenningssalerni“ segir í nýútgefnum reglum yfirvalda í Peking.   Meira »

Tekist á um kynfæri Zuma

Myndin The Spear eftir suður-afríska listamanninn Brett Murray hefur vakið hörð viðbrögð en á myndinni ...
22.5. Tveir menn sáust á mynd vinna skemmdarverk málverki af forseta Suður-Afríku, Jacob Zuma, en á myndinni sést hann stilla sér upp sem Lenín með kynfærin úti. Tekist er á um myndina fyrir dómi í Suður-Afríku en flokkur forsetans er ósáttur við myndina. Meira »

finnur.is