Mugison gerir það gott vestur í Bandaríkjunum

Mugison upp á sitt besta. stækka

Mugison upp á sitt besta.

Mugison er nú staddur í Denver í Bandaríkjunum og er á góðri leið með að heilla borgarbúa þar á sama hátt og hann gerði við heila þjóð síðasta haust.

Tónlistarmaðurinn er staddur í borginni fyrir tilstuðlan Icelandair en flugfélagið mun fljúga beint til borgarinnar frá og með maí. Hann hefur nú troðið upp á tveimur fréttastöðvum (FOX og NBC) og rita borgarmiðlar um þessa heimsókn hans á vefsetrum sínum.

Það má m.a. sjá hér.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Lét níu ára dóttur sína keyra

15:52 Bandarískur maður sem lét níu ára dóttur sína keyra sig um þar sem hann var undir áhrifum áfengis, hefur verið dæmdur í tveggja ára skilorðsbundið fangelsi. Meira »

Valdi bleik barnaföt

Jessica Simpson á von á sér í mars.
15:29 Allt bendir til þess að Jessica Simpson eigi von á dóttur í mars.  Meira »

Glápti á brjóst Maríu

María lítur til hliðar og Pentti Arajarvi lítur upp.
15:40 Pentti Arajarvi, eiginmaður Tarju Halonen forseta Finnlands, þykir hafa sýnt af sér dónalega framkomu í veislu sem hann sat í boði Margrétar drottningar Danmerkur. Arajarvi glápti með áberandi hætti á barm Maríu, eiginkonu Friðriks krónprins. Meira »

Auglýst eftir leikskáldi Borgarleikhússins

Borgarleikhúsið hefur ráðið sex ung leikskáld og auglýsir nú eftir Leikskáldi Borgarleikhússins.
14:49 Fyrr á þessu ári réð Borgarleikhúsið sex ung leikskáld til að semja stutt verk fyrir leikhúsið. Stefnt er að uppsetningu hluta þeirra á næsta ári. Nú auglýsir leikritunarsjóður Leikfélags Reykjavíkur í þriðja sinn eftir umsóknum um stöðu leikskálds Borgarleikhússins. Meira »

finnur.is