Kornabarn tókst á við snák

Snákur. Hann tengist þó fréttinni ekki beint. stækka

Snákur. Hann tengist þó fréttinni ekki beint.

„Ég var að gera mjólkina hans klára þegar ég leit upp og sá hann með snákinn í munninum,“ sagði Ghadir Aleeyan við fjölmiðla en rétt rúmlega eins árs sonur hennar nagaði um þrjátíu sentímetra snák til dauða fyrir liðna helgi. „Ég öskraði og trúði ekki mínum eigin augum.“

Hvítvoðungurinn sem býr ásamt fjölskyldu sinni í bænum Shefa'Amr, skammt frá hafnarborginni Haifa í Ísrael, slapp ómeiddur og án þess að snákurinn biti hann. Læknar staðfestu við fjölskylduna að um væri að ræða afar eitraða tegund.

Talið er að snákurinn hafi ekki bitið barnið vegna þess að fremur kalt var í veðri, og að snákar séu mun hættuminni yfir vetrartímann.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Hræddu líftóruna úr gíröffum

14.5. Tveir gíraffar hafa drepist í dýragarðinum í Lodz í Póllandi undanfarna daga og er dánarorsökin streita.  Meira »

Stakk kærasta systur sinnar

Maðurinn klessti kökusneið framan í kærustu sína.
8.5. Lögreglan í bandarísku borginni San Diego hafði í nógu að snúast nýverið þegar tilkynnt var um tvær hnífaárásir, í tveimur veislum, sama kvöldið. Og ástæðurnar voru harla óvenjulegar. Meira »

Fyrsta kattaveitingahús Vínar

Kötturinn Luca hefur það gott á kaffihúsinu
9.5. Kötturinn Luca sefur í körfu sinni meðan gengilbeina þjónar gestum á fyrsta kattaveitingahúsi Vínarborgar.   Meira »

Kínverskir nemendur beita ýmsum brögðum

Mynd úr skólastofu í Kína þar sem komið hefur verið upp búnaði til að nemendur ...
8.5. Nokkuð er um það að menntaskólanemendur í miðhluta Kína grípi til þess bragðs að fá amínósýrur í æð í þeim tilgangi að ná betri árangri í stúdentsprófum, en afar erfitt mun vera að komast inn í háskóla í landinu. Meira »

finnur.is