Brjálaðir bavíanar stela og bíta

Nei, það eru ekki allir bavíanar jafn stilltir og krúttilegir og þessir. stækka

Nei, það eru ekki allir bavíanar jafn stilltir og krúttilegir og þessir. Reuter

Hópar af þjófóttum og hrekkjóttum bavíönum hafa valdið talsverðum usla við eftirlitsstöð á landamærum Zimbabwe og Zambíu en þeir hrella ferðafólk sem á leið þar um með því að stela mat og eignum, ráðast á fólk og skemma jafnvel farartæki.

„Bavíanar eru vandamál sem verður að taka á því þeir eyðileggja eignir ferðalanga,“ sagði tollayfirvörður eftirlitsstöðvarinnar í Chirundu, Tichaona Phiri, í samtali við dagblaðið NewsDay.

„Stundum bíta þeir eða slá fólk í andlitið ef það reynir að vernda eigur sínar og þeir stela stundum handtöskum kvennanna og eyðileggja jafnvel bifreiðar í leit sinni að matvælum,“ sagði Phiri.

Aparnir hafa einnig átt það til að rífa upp sekki með maís sem fluttir eru á pallbílum yfir landamærin. „Bavíanarnir finna lyktina af maísnum á bílunum og þar sem fjöldi þeirra er gríðarmikill er erfitt að eiga við þá,“ sagði Phiri.

„En aðal vandamálið er að þeir hegða sér eins og manneskjur og eru mjög færir hrekkjalómar,“ bætti hann við.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Hræddu líftóruna úr gíröffum

14.5. Tveir gíraffar hafa drepist í dýragarðinum í Lodz í Póllandi undanfarna daga og er dánarorsökin streita.  Meira »

Stakk kærasta systur sinnar

Maðurinn klessti kökusneið framan í kærustu sína.
8.5. Lögreglan í bandarísku borginni San Diego hafði í nógu að snúast nýverið þegar tilkynnt var um tvær hnífaárásir, í tveimur veislum, sama kvöldið. Og ástæðurnar voru harla óvenjulegar. Meira »

Fyrsta kattaveitingahús Vínar

Kötturinn Luca hefur það gott á kaffihúsinu
9.5. Kötturinn Luca sefur í körfu sinni meðan gengilbeina þjónar gestum á fyrsta kattaveitingahúsi Vínarborgar.   Meira »

Kínverskir nemendur beita ýmsum brögðum

Mynd úr skólastofu í Kína þar sem komið hefur verið upp búnaði til að nemendur ...
8.5. Nokkuð er um það að menntaskólanemendur í miðhluta Kína grípi til þess bragðs að fá amínósýrur í æð í þeim tilgangi að ná betri árangri í stúdentsprófum, en afar erfitt mun vera að komast inn í háskóla í landinu. Meira »

finnur.is