Gaf seðlana af veggnum

Dollari. stækka

Dollari.

Eigandi veitingastaðarins Fat Smitty´s í Discovery Bay í Washington hefur látið um 10 þúsund dollara renna til góðgerðarmála en hver einasti dollaraseðill kom af vegg staðarins, þar sem þeir höfðu sumir hverjir hangið í 27 ár.

Hefðin komst á þegar farandsölumaður krotaði nafn sitt á dollaraseðil og festi hann síðan með teiknibólu á vegginn. Aðrir kúnnar veitingastaðarins fóru að apa þetta eftir og þegar eigandi staðarins, Carl „Fat Smitty“ Schmidt ákvað að láta peningana renna til góðgerðarmála, kom í ljós að seðlarnir voru orðnir alls 10.316 talsins.

Peningarnir munu renna til Camp Parsons-skátabúðanna og rannsóknarmiðstöðvarinnar á St. Jude´s barnaspítalanum í Memphis en eigandi veitingastaðarins vonar að þegar endurinnréttingum lýkur í lok mars muni viðskiptavinir hans hefja að festa dollaraseðla á vegginn á ný.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Hræddu líftóruna úr gíröffum

14.5. Tveir gíraffar hafa drepist í dýragarðinum í Lodz í Póllandi undanfarna daga og er dánarorsökin streita.  Meira »

Stakk kærasta systur sinnar

Maðurinn klessti kökusneið framan í kærustu sína.
8.5. Lögreglan í bandarísku borginni San Diego hafði í nógu að snúast nýverið þegar tilkynnt var um tvær hnífaárásir, í tveimur veislum, sama kvöldið. Og ástæðurnar voru harla óvenjulegar. Meira »

Fyrsta kattaveitingahús Vínar

Kötturinn Luca hefur það gott á kaffihúsinu
9.5. Kötturinn Luca sefur í körfu sinni meðan gengilbeina þjónar gestum á fyrsta kattaveitingahúsi Vínarborgar.   Meira »

Kínverskir nemendur beita ýmsum brögðum

Mynd úr skólastofu í Kína þar sem komið hefur verið upp búnaði til að nemendur ...
8.5. Nokkuð er um það að menntaskólanemendur í miðhluta Kína grípi til þess bragðs að fá amínósýrur í æð í þeim tilgangi að ná betri árangri í stúdentsprófum, en afar erfitt mun vera að komast inn í háskóla í landinu. Meira »

finnur.is