|
Monitor
| Cover Media
| 31.1.2012
| 23:10
Ricky Martin vekur lukku
Ricky Martin mun bráðlega birtast í litlu hlutverki í Glee-þáttunum en þar mun hann leika spænskukennara. Leikkonan Naya Rivera fer með hlutverk Santana Lopez í þáttunum og var hún í skýjunum yfir því að fá að leika á móti söngvaranum þokkafulla.
"Ricky Martin var æðislegur, þetta var draumur að rætast," sagði leikkonan við MTV. "Við erum öll mjög spennt yfir því að fá að starfa með Ricky. Ég syng með honum dúett og það eitt og sér er brjálæði. Hann er fallegur maður og ég var mjög náin honum."
Margir þekktir einstaklingar hafa leikið lítil hlutverk í Glee-þáttunum, þar á meðal Gwyneth Paltrow og Britney Spears, en Naya virðist sérstaklega hrifin af því að fá að hitta suður-ameríska söngvarann. Leikkonan notaðist við Twitter á meðan hún lék á móti Ricky en passaði sig að nafngreina hann ekki því þá var það ekki orðið opinbert að hann myndi birtast í þáttunum. "Annar dagurinn í röð sem ég vinn með svalasta spænskukennara í heimi! Og ég fæ að syngja með honum," tísti hún fyrir nokkru.









