Elsta eftirprentun af Monu Lisu
Spænskir listfræðingar telja sig vera búna að finna elstu eftirprentunina eftir málverkinu Monu Lisu eftir Leonardo da Vinci. Eftirprentunin er talin máluð á vinnustofu Da Vincis sjálfs en þó ekki af honum. Á málverkinu lítur Mona Lisa út fyrir að vera yngri en á upprunalegu myndinni.
Málverkið er í eigu Prado safnsins í Madríd og við lagfæringu á því kom myndin af Monu Lisu í ljós en yfir hana hafði verið málað með svartri málningu. Málverkið hefur því verið þekkt lengi en ekki vitað hvaða gersemi það í raun hafði að geyma. Var Mona Lisa m.a. greind í verkinu með aðstoð innrauðrar lýsingar. Málað hafði verið yfir verkið á 18. öld en ástæður þess eru ekki kunnar.
Eftirmyndin er nokkuð nákvæm og þykir verkið, þó að eftirprentun sé, hafa varpað ljósi á hvernig málarar unnu við upphaf sextándu aldar.
Málverkið verður sýnt í Louvre-safninu ásamt fyrirmyndinni, í lok mars.









