Fékk nafnatillögur frá Íslandi
Bandarískt par sem óskaði eftir tillögum á barn sitt á Facebook fékk m.a. tillögur frá ókunnugum á Íslandi.
Parið átti stúlku í gær. Þau hófu að óska eftir tillögum að nafni á ófædda dóttur sína í september síðastliðnum og tóku yfir 4.200 Facebook-notendur þátt í samkeppninni. Að lokum var það nafnið Madelyn sem hlaut flest atkvæði, eða 1.310.
Fyrst í stað var það þó nafnið Emily sem féll í kramið hjá þátttakendum. Faðir stúlkunnar segir skemmtilegt að nafnið Madelyn hafi borið sigur úr býtum því þau hjónin hafi einmitt ætlað að skíra eldri dóttur sína því nafni.
Fréttin um nafnasamkeppnina rataði m.a. til Facebook-notenda á Íslandi. „Hvernig getur svona lagað breiðst svona hratt út?“ spyr faðir stúlkunnar, Dave Merske.
Hann á þó von á því að Madelyn litla eigi eftir að njóta þess í framtíðinni að heyra söguna á bak við nafnið.
- Fær rúma sex milljarða fyrir Hefnendurna
-
Gabríel á forsíðu Monitor
- Ástin kviknaði á ný
- Chuck Brown látinn
- Menningarnótt í New York
- Köflóttur í Cannes
- Sorkin skrifar og leikstýrir mynd um Jobs
-
Bítlanna leitað í London
- Brettafjör í Bláfjöllum í dag
- Caine læstur á háalofti yfir nótt
- Dregur kæru á hendur Travolta til baka
- Versta martröð Woody Allen









