Gladdi starfsmennina með tveggja milljarða kaupauka

stækka

Reuters

Forstjóri rútufyrirtækisins í Ástralíu kom starfsmönnum sínum ánægjulega á óvart með því að greiða þeim samtals um 15 milljónir ástralskra dala (um 1,9 milljarða kr.) í kaupauka. Forstjórinn vildi með þessu þakka þeim fyrir vel unnin störf. Starfsmennirnir eru orðlausir.

Ken Grenda, sem er 79 ára gamall, seldi fjölskyldufyrirtækið sem hefur verið starfrækt í 66 ár. Hann ákvað að láta stóran hluta söluandvirðisins renna í vasa starfsmannanna, sem hafa verið duglegir og hliðhollir.

Alls starfa um 1.800 manns hjá fyrirtækinu. Þegar þeir fóru yfir stöðuna í heimabankanum og sáu að búið var að leggja inn á þá mörg þúsund dali, þá töldu þeir að bankinn hlyti að hafa gert mistök.

Að meðaltali fékk hver og einn starfsmaður um 8.500 ástralska dali í sinn hlut, eða rúma eina milljón kr. Sumir fengu yfir 100.000 dali.

„Fyrirtæki getur aðeins verið eins gott og starfsmennirnir og okkar starfsfólk er frábært,“ segir forstjórinn rausnarlegi.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Hræddu líftóruna úr gíröffum

14.5. Tveir gíraffar hafa drepist í dýragarðinum í Lodz í Póllandi undanfarna daga og er dánarorsökin streita.  Meira »

Stakk kærasta systur sinnar

Maðurinn klessti kökusneið framan í kærustu sína.
8.5. Lögreglan í bandarísku borginni San Diego hafði í nógu að snúast nýverið þegar tilkynnt var um tvær hnífaárásir, í tveimur veislum, sama kvöldið. Og ástæðurnar voru harla óvenjulegar. Meira »

Fyrsta kattaveitingahús Vínar

Kötturinn Luca hefur það gott á kaffihúsinu
9.5. Kötturinn Luca sefur í körfu sinni meðan gengilbeina þjónar gestum á fyrsta kattaveitingahúsi Vínarborgar.   Meira »

Kínverskir nemendur beita ýmsum brögðum

Mynd úr skólastofu í Kína þar sem komið hefur verið upp búnaði til að nemendur ...
8.5. Nokkuð er um það að menntaskólanemendur í miðhluta Kína grípi til þess bragðs að fá amínósýrur í æð í þeim tilgangi að ná betri árangri í stúdentsprófum, en afar erfitt mun vera að komast inn í háskóla í landinu. Meira »

finnur.is