Veröld/Fólk
| AFP
| 1.2.2012
| 22:56
Hertogahjónin fá sér hvolp
Katrín, hertogaynja af Cambridge og eiginkona Vilhjálms prins, mun ekki vera einmana þegar Vilhjálmur heldur til starfa á Falklandseyjum innan tíðar. Hjónin hafa nefnilega nýlega fengið sér hvolp sem mun halda hertogaynjunni félagsskap.
Vilhjálmur mun vera á Falklandseyjum í sex vikur, en hann starfar sem þyrluflugmaður í konunglega flughernum.
Talsmaður konungsfjölskyldunnar segir að hvolpurinn sé af Cocker Spaniel-kyni, hann sé nokkurra mánaða gamall og að hann eigi ættir sínar að rekja til hunds í eigu móður Katrínar.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin
- Fær rúma sex milljarða fyrir Hefnendurna
-
Gabríel á forsíðu Monitor
- Ástin kviknaði á ný
- Chuck Brown látinn
- Menningarnótt í New York
- Köflóttur í Cannes
- Sorkin skrifar og leikstýrir mynd um Jobs
-
Bítlanna leitað í London
- Brettafjör í Bláfjöllum í dag
- Caine læstur á háalofti yfir nótt
- Dregur kæru á hendur Travolta til baka
- Versta martröð Woody Allen









