Veröld/Fólk
|
Veraldarfréttir
| mbl
| 1.2.2012
| 22:21
Jarmað hring eftir hring
Myndband frá Rússlandi af fjárhópi að hlaupa í kringum bíl hefur vakið eftirtekt á netinu.
Myndskeiðið er örstutt, aðeins 22 sekúndur, en þó ná kindurnar að hlaupa í marga hringi á þeim tíma.
Myndbandið er tekið upp á farsíma og þar sést að bílstjórinn þeytir bílflautuna stöðugt á meðan fjárhópur umkringir bílinn og hleypur svo hring eftir hring eins og hann eigi lífið að leysa.
Sá sem setur myndbandið á YouTube skrifar að atburðurinn hlægilegi hafi átt sér stað í Kákasushéraði.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin









