Rannsókn á láti Winehouse endurtekin?
Dánardómstjórinn sem sá um rannsókn á dauða söngkonunnar Amy Winehouse hefur sagt af sér. Hæfni dómstjórans hefur verið dregin í efa og hugsanlegt er að endurtaka þurfi rannsóknina á láti Winehouse.
Í október síðastliðnum gaf dánardómstjórinn það út að dánarorsök Winehouse væri áfengiseitrun. Suzanne Greenway var gerð að dómstjóra við embætti ríkissaksóknara í London árið 2009 en eiginmaður hennar skipaði hana í stöðuna.
Hún sagði af sér í nóvember síðastliðnum eftir að í ljós kom að hún hafði ekki verið skráður lögfræðingur í Bretlandi í fimm ár. Ákvörðunin var ekki gerð opinber fyrr en í dag. Greenway er Ástrali og hefur stundað lögmennsku í heimalandi sínu í yfir áratug.
Eiginmaðurinn og yfirmaður Greenway segist ekki hafa gert sér grein fyrir að Ástrali þyrfti sérstakt leyfi til að starfa sem slíkur í Bretlandi.
Fjölskylda Winehouse hefur ekki ákveðið hvernig hún ætlar að bregðast við tíðindunum. Faðir Winehouse, Mitch, skrifaði á Twitter í gær að hann hefði ekki miklar áhyggjur af málinu.









