Stressuð fyrir kynlífssenurnar

Eva Green með Daniel Craig.

Eva Green með Daniel Craig. STRINGERITALY

Eva Green var kvíðin fyrir upptökur á ástarsenur með Ewan McGregor.

Leikkonan leikur á móti skoska sjarmörnum í stórmyndinni Perfect Sense. Hún hrósaði honum fyrir hve umburðarlyndur hann var og hvernig hann hjálpaði henni að slaka á fyrir framan myndavélina.

Green sagði að ásamt því að vera frábær leikari bæri Ewan eiginleika sem aðskildi hann frá öðrum leikurum.

„Hann vissi að ég væri kvíðin og var algjör herramaður. Hann var vanur að segja: „Langar þig að koma með mér í kvöldmat?“ Við vorum heppin að við höfðum viku til þess að æfa okkur áður en tökurnar hófust svo við kynntumst hvort öðru vel,“ sagði Eva í samtali við New York Post.

„Hann er falleg og góð manneskja. Það er eitthvað mjög sérstakt við hann. Ég er alltof lokuð sjálf svo við bættum hvort annað upp.“

Fyrrum Bond-stúlkan ræddi einnig framtíð sína í leiklist. Hún sagðist vilja komast í meira krefjandi hlutverk til að forðast það að leika sömu týpurnar aftur og aftur.

„Ég sagði við vinkonu mína að mig langaði að leika ræstingarkonu næst. Eitthvað gróft og hrátt. Ég vil ekki vera fáguð og falleg kona aftur heldur einhver tættari kona, kannski í fangelsi. Ég vil klárlega forðast það að festast í ákveðinni tegund af hlutverkum.“

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Monitor — Fleiri fréttir

Ágætt ef fólk hlekkjaði sig við húsið myndskeið

monitor mugison
17.5. Hann er með flottasta skeggið í bransanum. Hann er að vestan. Hann er með dáleiðandi rödd. Mugison fékk viðurnefnið sitt þegar hann var í skemmtiferð í Malasíu með pabba sínum og hann mun spila á Nasa á laugardaginn í allra síðasta skipti. Meira »

Reykjavik Live-hátíðin myndskeið

ReykjavikLive
12.5. Fyrsta tónlistarhátíð sumarsins hefst í næstu viku en þá hefst Reykjavik Live-hátíðin.   Meira »

Gabríel á forsíðu Monitor myndskeið

monitor gabriel
16.5. Það er ekki á hverjum degi sem grímuklæddur maður prýðir forsíðu Monitor en tónlistarmaðurinn Gabríel er forsíðufyrirsæta Monitor þessa vikuna. Nýjasta tölublaðið kemur út á morgun. Meira »

Tilbiðja Monitor á hverjum degi myndskeið

111 monitor
11.5. MonitorTV heimsótti félagsmiðstöðina Hundrað&ellefu, sem við fyrstu sýn virðist vera einhvers konar sértrúarsöfnuður helgaður Monitor. Agnes Valdimarsdóttir, fréttamaður MonitorTV, kíkti á stemninguna í miðri tilbeiðslu hjá krökkunum. Meira »

finnur.is