Tannlaus kona rændi banka

Hér er engin þörf á tannviðgerð en bankaræninginn var tannlaus. stækka

Hér er engin þörf á tannviðgerð en bankaræninginn var tannlaus. mbl.is/Kristinn

Tannlaus kona sem rændi banka í Pennsylvaníu hefur beðist afsökunar og segist hafa þurft peningana til tannlækninga.

Hin 49 ára gamla Evelyn Marie Fuller var handtekin í gær en hún rændi The First National Bank hinn 20. janúar síðastliðinn.

Konan sagði lögreglunni að hún ætti við sálræn vandamál að stríða og væri mjög fátæk. Presturinn hennar hafði ráðlagt henni að leggja öll spilin á borðið og játa verknaðinn.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Ostar urðu skjálfta að bráð

Parmesanostur
Í gær, 16:04 Gríðarlegt magn af parmesan- og Grana Padano-osti eyðilagðist í jarðskjálftunum á Ítalíu í nótt. Er tjónið metið á um 250 milljónir evra, 40,7 milljarða króna. Meira »

Steed Lord og smábíll

Svala Björgvinsdóttir (t.h.).
18.5. Svala Björgvinsdóttir og félagar hennar í hljómsveitinni Steed Lord koma fram í auglýsingu fyrir smábíl fyrirtækisins Smart sem sænski fataframleiðandinn WeSC sá um hönnun á. Meira »

Tileinka forsetafrúnni 1.400 ára ólífutré

Michelle Obama.
18.5. Ítalir hafa tileinkað Michelle Obama, forsetafrú Bandaríkjanna, 1.400 ára ólífutré sem er þekkt undir nafninu Drottningin. Ástæða þessa heiðurs er sögð ástríða Obama fyrir bættri heilsu fólks. Meira »

Sýnir í Winchester

Frá afhendingu styrksins úr Listasjóði Ólafar í fyrradag. Edda Heiðrún er fyrir miðju.
18.5. Edda Heiðrún Backman mun taka þátt í viðamikilli, alþjóðlegri sýningu í Winchester á Englandi í byrjun ágúst þar sem sýnd verða verk eftir hreyfihamlaða listamenn sem mála verk sín með því að halda pensli í munni eða milli táa. Meira »

finnur.is