|
Monitor
| Cover Media
| 2.2.2012
| 23:00
Barrymore bætti á sig í kuldanum
Nýjasta myndin sem Drew Barrymore leikur í heitir Big Miracle og var tekin upp í Alaska. Leikkonan segist sjálf sólarfíkill og reyndist það henni því að mörgu leyti erfitt að taka upp á svona köldum slóðum enda átti hún lítið af útivistarfötum.
„Ég bjó bókstaflega í útivistarbúðinni þegar ég kom til Alaska. Það hjálpaði klárlega,“ segir hún í samtali við USA Today og hlær.
Kuldinn hafði þó einnig öðruvísi áhrif á hana því hún upplifði óseðjandi hungur í Alaska og var því dugleg að fara út að borða með mótleikaranum John Krasinski og eiginkonu hans, Emily Blunt.
„Ég bætti klárlega á mig einhverjum fimm til átta pundum sem urðu hlífðarspik. Það sást bara ekki undir öllum þessum fatnaði,“ segir Drew. „Þegar ég kom heim til LA hugsaði ég: „Vá, ég tók greinilega hluta af Alaska með mér heim.“









