|
Monitor
| mbl
| 2.2.2012
| 14:48
| Uppfært
3.2.2012
15:14
Búist við sprengju í Þjóðleikhúsinu
„Við ætluðum bara að hafa eina sýningu kl. 20 en svo hefur salan farið fram úr væntingum þannig að við ákváðum að bæta við sýningu kl. 23. Það verður hálfgerð miðnætursýning,“ segir Björn Bragi Arnarsson, uppistandari í grínhópnum Mið-Ísland. Þeir standa fyrir tveimur uppistandssýningum laugardaginn 10. febrúar næstkomandi í Þjóðleikhúsinu. „Það verður spennandi að hafa aðra sýningu svona seint. Svo skemmir ekki fyrir að þá verða gestirnir líklega búnir að gíra sig aðeins upp og stemningin verður sennilega ennþá léttari en á fyrri sýningunni.“
Hópurinn hefur undanfarið eitt og hálft ár haldið skemmtikvöldin sín í Þjóðleikhúskjallaranum en komandi sýningar fara hins vegar fram á aðalsviði Þjóðleikhússins. „Það er frábært að geta fært sýningarnar upp á næsta stig og að sama skapi ótrúlega gaman að sjá hvað fólk tekur vel í þetta. Sjálfir erum við auðvitað mjög spenntir fyrir þessu og ætlum að gera þetta kvöld ógleymanlegt. Það verður sprengja í Þjóðleikhúsinu þetta kvöld, þó ekkert í líkingu við þá sem fannst á Hverfisgötunni í vikunni. Þetta verður grínsprengja.“
Sjáið brot frá fyrra uppistandi Mið-Íslands þar sem Björn Bragi grínaðist með lag hljómsveitarinnar Á móti sól hér.









