Dujardin í vanda
Franski leikarinn Jean Dujardin hefur legið undir ámæli í heimalandinu í dag vegna auglýsingar á nýrri kvikmynd sem hann leikur í. Hefur auglýsingin verið bönnuð þar sem hún þykir gera lítið úr konum.
Dujardin, sem er tilnefndur til Óskarsverðlaunanna fyrir leik sinn í kvikmyndinni The Artist, sést á veggspjaldinu halda um fætur konu og undir stendur: „Ég er á leið á fund“.
Franska auglýsingaeftirlitið (ARPP) krafðist þess að veggspjaldið yrði fjarlægt af auglýsingaskiltum í París en víðsvegar um borgina er nýjasta mynd hans, Les Infidele, auglýst. Myndin verður frumsýnd í lok febrúar.
Eins var kvartað yfir þremur öðrum auglýsingum myndarinnar sem einnig þykja niðrandi fyrir konur og klámfengnar, líkt og þessar myndir sýna.
Verða spjöldin fjarlægð á morgun, samkvæmt upplýsingum frá ARPP.









