Erfitt að lifa með fortíðinni

Brad Pitt kvaddi sitt fyrra líf. stækka

Brad Pitt kvaddi sitt fyrra líf. Getty Images

Brad Pitt kvíðir því þegar börnin hans stækka og verða fær um að afla sér upplýsinga á veraldarvefnum þar sem þau geta til dæmis lesið neikvæðar fréttir úr fyrra lífi hans. Leikarinn kveðst ekki hafa verið neinn engill og sumt sem hann gerði á yngri árum þoli illa að vera dregið fram í dagsljósið, þar með talið maríjúananeysla hans.

Pitt var gestur þýsku sjónvarpsstöðvarinnar Tele 5 og sagði þar að hann væri ekki stoltur af öllu úr fyrra lífi sínu. Hann væri sex barna faðir og það yrði vissulega erfitt þegar börnin yrðu nógu stór til að afla sér upplýsinga á vefnum og gætu auðveldlega lesið allt um það sem hann hefði gert og sagt og væri minna hreykinn af.

Barnsmóðir Pitts, Angelina Jolie, hefur einnig lifað skrautlegu lífi og hefur oft talað um erfið unglingsár sín og dálæti sitt á hnífum. Bæði voru gift áður og mátti Pitt þola harða gagnrýni á síðasta ári þegar hann greindi opinberlega frá óhamingju sinni í hjónabandi hans og Jennifer Aniston og sagði það tímabil í lífi sínu hafa verið ömurlegt.

Leikarinn veit að börn hans og Jolie munu fá vitneskju um fortíð þeirra, annaðhvort úr fjölmiðlum eða í gegnum annað fólk, og veltir því fyrir sér hvað þau muni halda um foreldra sína.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Sýning á verkum Dieters Roths

Verk eftir Dieter Roth.
05:30 Sýning á verkum eftir þýsk-svissneska listamanninn Dieter Roth verður opnuð í Galleríi Fold á föstudaginn kemur kl. 17-19.   Meira »

Hallveig syngur Stúlkuna á heiðinni

Hallveig Rúnarsdóttir sópransöngkona.
05:30 Sópransöngkonan Hallveig Rúnarsdóttir og píanóleikarinn Antonía Hevesi flytja söngflokkinn Stúlkuna á heiðinni eftir Edvard Grieg í Norðurljósasalnum á morgun, þriðjudag, kl. 12.15. Meira »

Tólf stunda langur gjörningur sýndur

Ragnar Kjartansson.
05:30 Myndbandsverk, sem er upptaka af tólf klukkustunda löngum óperugjörningi Ragnars Kjartanssonar, Bliss, verður sýnt í fullri lengd á tjaldi á stóra sviði Þjóðleikhússins. Meira »

Robin Gibb látinn

Robin Gibb.
00:07 Söngvarinn góðkunni Robin Gibb lést í gær, sunnudag, 62 ára að aldri. Gibb, sem var meðlimur einnar vinsælustu poppsveitar sem sögur fara af, Bee Gees, glímdi við erfið veikindi; krabbamein í ristli og lifur. Veikindin drógu hann að lokum til dauða, tæpum mánuði eftir að hann vaknaði úr dái og sýndi góð batamerki. Meira »

finnur.is