|
Monitor
| Cover Media
| 2.2.2012
| 22:00
Ja Rule eignast vini í fangelsi
Rapparinn Ja Rule segir það frábært að vera í fangelsi og að hann hafi myndað sterk vinatengsl við aðra fanga.
Ja Rule afplánar nú tveggja ára dóm fyrir refsiverðan vopnaburð ásamt viðbótartíma fyrir skattsvik. Hann hefur þó ekki setið aðgerðalaus í fangelsinu Mid-State Correctional Facility í Oneida, New York.
Á tíma sínum í fangelsinu hefur hann meðal annars undirbúið útgáfu á nýrri plötu, Pain is Love 2, sem kemur út síðar í mánuðinum. Rappstjarnan hefur einnig vingast mjög við tvo fanga og horfa þeir gjarnan á sjónvarpið eða vinna heimanám saman.
„Þarna ytra þá hittirðu ekki svona menn dagsdaglega. Þessi staður er frábær,“ segir Ja Rule í samtali við New York Daily News. „Ég var að læra við GED (sérstakt stöðupróf fyrir fólk sem hefur hætt í „high school“) og Koz mætti og sagði við mig: „Láttu mig bara vita ef þig vantar hjálp.““
Hann hefur nú ákveðið að taka viðskiptakúrsa í háskóla eftir að Dennis Kozlowski, samfangi hans, stakk upp á því við hann. Hinn félagi Ja Rule í fangelsi er fyrrum stjórnmálamaðurinn Alan Hevesi.
„Hevesy er demókrati eins og ég, svo það hjálpar,“ segir hann og brosir. „Það er fyndið. Fortíð okkar er gjörólík en þegar maður er hér, þá er maður hér.“









