Kötturinn kafnaði í heimilissorpinu

Courtney Love. stækka

Courtney Love. Getty Images

Courtney Love situr undur þungum ámælum frá 19 ára gamalli dóttur sinni, Frances Bean Cobain, sem fullyrðir að hún hafi með óreglu og hirðuleysi verið völd að dauða tveggja heimilisdýra. Frances, sem Love eignaðist með Kurt Cobain heitnum, fékk dæmt nálgunarbann á móður sína árið 2009 og nú hafa upplýsingar úr dómsskjölum lekið í fjölmiðla.

Í gögnunum kemur fram að Frances ásaki móður sína um að hafa með vanrækslu valdið dauða tveggja gæludýra hennar. Að sögn dótturinnar safnar Love drasli og hendir engu og fór svo á endanum að kötturinn kafnaði í heimilissorpinu. Hundurinn hennar gleypti  aftur á móti róandi töflur söngkonunnar og drapst.

Frances segir móður sína hafa notað eiturlyf frá því að hún man eftir sér, hún borði sjaldan og nærist á töflum, sykri og sígarettum. Hún sofni oft og iðulega út frá logandi sígarettu og sjálf hafi hún lifað í stöðugum ótta við að móðir hennar myndi kveikja í húsinu, eina ferðina enn.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Sýning á verkum Dieters Roths

Verk eftir Dieter Roth.
05:30 Sýning á verkum eftir þýsk-svissneska listamanninn Dieter Roth verður opnuð í Galleríi Fold á föstudaginn kemur kl. 17-19.   Meira »

Hallveig syngur Stúlkuna á heiðinni

Hallveig Rúnarsdóttir sópransöngkona.
05:30 Sópransöngkonan Hallveig Rúnarsdóttir og píanóleikarinn Antonía Hevesi flytja söngflokkinn Stúlkuna á heiðinni eftir Edvard Grieg í Norðurljósasalnum á morgun, þriðjudag, kl. 12.15. Meira »

Tólf stunda langur gjörningur sýndur

Ragnar Kjartansson.
05:30 Myndbandsverk, sem er upptaka af tólf klukkustunda löngum óperugjörningi Ragnars Kjartanssonar, Bliss, verður sýnt í fullri lengd á tjaldi á stóra sviði Þjóðleikhússins. Meira »

Robin Gibb látinn

Robin Gibb.
00:07 Söngvarinn góðkunni Robin Gibb lést í gær, sunnudag, 62 ára að aldri. Gibb, sem var meðlimur einnar vinsælustu poppsveitar sem sögur fara af, Bee Gees, glímdi við erfið veikindi; krabbamein í ristli og lifur. Veikindin drógu hann að lokum til dauða, tæpum mánuði eftir að hann vaknaði úr dái og sýndi góð batamerki. Meira »

finnur.is