Michael Jackson okkar kynslóðar

Chris Brown. stækka

Chris Brown. mbl.is/COVER

Chris Brown er sannfærður um að nýtt tónlistarmyndband sem hann er að senda frá sér sé hans "besta til þessa."
Chris er virkilega ánægður með myndbandið sem gert er við nýjasta lag hans, Turn up the Music. Hann sagði nýverið á samskiptavefnum Twitter að það skyggi á fyrri myndbönd sem hann hefur sent frá sér.
"Ég fæ ykkur til þess að dæma sjálf en Turn up the Music myndbandið er klárlega besta myndbandið mitt til þessa," skrifaði söngvarinn.

Myndbönd listamannsins eru venjulega full af fjöri þar sem hann sést skemmta sér með vinum eða hanga með frægum samstarfsfélögum sínum.

RnB-söngvarinn tísti líka þegar myndbandið var tekið upp.
"UPPTÖKUR Á TURN UP THE MUSIC MYNDBANDINU Í DAG!!! Jáááááá," tísti Brown.

Lagið er fyrsta lagið sem Brown sendir frá sér af sinni fimmtu hljóðversplötu, Fortune og er lagið nú þegar búið að fá talsvert umtal.
Upptökustjórarnir Harvey Mason Jr. og Damon Thomas, sem saman skipa "The Underdogs", hafa gefið það í skyn að lagið gæti orðið þeirra best heppnaða smáskífa til þessa.

Þrátt fyrir illræmda árás Chris á fyrrverandi kærustu sína, Rihanna árið 2009 hefur tónlistarferill Chris eflst töluvert með tímanum.
Harvey Mason jós söngvarann nýverið lofi og bar hann meira að segja saman við goðsögnina Michael Jackson.
"Hann er svo fölhæfur að hann getur sungið hvað sem er. Hann fer létt með hröð lög, hann getur sungið ballöður og hann getur sungið popp. Þú getur í raun beðið hann um að syngja hvaða lag sem er sem þú heldur að geti orðið vinsælt," sagði Mason við MTV News. "Í augnablikinu er hann hinn fullkomni listamaður í mínum huga. Það má segja að hann sé Michael Jackson okkar kynslóðar."

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Monitor — Fleiri fréttir

Ágætt ef fólk hlekkjaði sig við húsið myndskeið

monitor mugison
17.5. Hann er með flottasta skeggið í bransanum. Hann er að vestan. Hann er með dáleiðandi rödd. Mugison fékk viðurnefnið sitt þegar hann var í skemmtiferð í Malasíu með pabba sínum og hann mun spila á Nasa á laugardaginn í allra síðasta skipti. Meira »

Reykjavik Live-hátíðin myndskeið

ReykjavikLive
12.5. Fyrsta tónlistarhátíð sumarsins hefst í næstu viku en þá hefst Reykjavik Live-hátíðin.   Meira »

Gabríel á forsíðu Monitor myndskeið

monitor gabriel
16.5. Það er ekki á hverjum degi sem grímuklæddur maður prýðir forsíðu Monitor en tónlistarmaðurinn Gabríel er forsíðufyrirsæta Monitor þessa vikuna. Nýjasta tölublaðið kemur út á morgun. Meira »

Tilbiðja Monitor á hverjum degi myndskeið

111 monitor
11.5. MonitorTV heimsótti félagsmiðstöðina Hundrað&ellefu, sem við fyrstu sýn virðist vera einhvers konar sértrúarsöfnuður helgaður Monitor. Agnes Valdimarsdóttir, fréttamaður MonitorTV, kíkti á stemninguna í miðri tilbeiðslu hjá krökkunum. Meira »

finnur.is