Andrea Ösp leikur Mjallhvíti í Los Angeles
Andrea Ösp Karlsdóttir sem er einn af stofnendum íslenska leikhópsins Lottu hefur núna tekið þátt í stofnun leikhópsins The Smiley Face and the Frown Entertainment Group en Andrea býr nú í Los Angeles. Andrea Ösp hefur meðal annars leikið Lilla klifurmús í leikverkinu Dýrinn í Hálsaskógi í uppsetningu Lottu. Hún menntaði sig í leiklist í Los Angeles og gekk þar í The Amercian Academy of Dramatic Arts.
Tvö verk á döfinni
„Við rekum hópinn af mikill ástríðu og höfum hlotið miklar og góðar undirtektir á þeim stutta tíma sem hópurinn hefur verið starfandi,“ segir Andrea. En fyrsta leiksýning leikhópsins var Pitchfork Disney haustið 2011 og fékk sú sýning meðal annars góða gagnrýni frá LA Weekly. Verkið var það eftirsótt að sýningartími þess var framlengdur tvisvar sinnum og var uppselt á allar sýningar.
„Í vor er mikið á dagskrá hjá okkur. Við höfum byrjað með mánaðarleg skemmtikvöld á hverfisbar hér í borginni, þar sem ýmsir listamenn koma fram. Á döfinni eru svo tvö glæný verk og verða þau frumsýnd í vor,“ segir Andrea um komandi verkefni leikhópsins.
Annað þessara verka er Mjallhvít eftir íslenska handritshöfundinn, leikarann og leikstjórann Önnu Bergljótu Thorarensen. En verkið var sett upp af Leikhópnum Lottu síðasta sumar hér á Íslandi og hefur það einnig verið flutt í Danmörku. Einnig er hópurinn að vinna að nýrri sýningu sem heitir Rest for the Weary Spirit eftir handritshöfundana Ellen Chambers og Mark Mason.
Undanfarið hefur verið unnið í því að þýða Mjallhvíti yfir á ensku og hafa þau Andrea Ösp og Jökull Jónsson séð um þýðingar. „Undirbúningur á amerísku útgáfunni hefur staðið yfir í nokkra mánuði. Við höfum fundi æðislegt útileikhús í garði hér í borginni, ráðið til okkar frábæran búningahönnuð og svo er Anna Bergljót á leiðinni út til okkar til að leikstýra verkinu,“ segir Andrea. En Andrea sjálf mun leika í hlutverki Mjallhvítar.
Langveikum börnum boðið á sýningar
Andrea segir að öll vinna við verkið Mjallhvíti sé unnin í sjálfboðavinnu og allur ágóði mun fara í kostnað vegna uppsetningar verksins.
„Við ætlum að ferðast með sýninguna á barnaspítala í Kaliforníu og bjóða langveikum börnum og foreldrum þeirra ókeypis á sýningar. Það hittir okkur í hjartastað að vinna frítt og gefa veikum börnum tækifæri til þess að brosa. Nokkur í hópnum okkar eiga systkini sem eru langveik og því er það mikilvægt fyrir okkur að hjálpa þeim börnum sem eiga við erfiðleika að stríða,“ segir Andrea. En börnunum mun eftir sýninguna gefast færi á því að láta taka myndir af sér með uppáhalds persónunni úr sýningunni.
Mjallhvít verður frumsýnd 24. mars næstkomandi en undirbúningur á verkinu hefur staðið yfir allt frá síðasta hausti. Leikhópurinn er að safna fjármagni fyrir uppsetningunni, leikmynd, búningum og leyfum til þess að mega flytja verkið utandyra. Þeir sem vilja hjálpa leikhópnum geta lagt þeim lið með því að smella á þennan tengil.









