Páfinn særði
Með því að blessa tvo menn árið 2009 særði Benedikt páfi púka úr þeim. Þetta kemur fram í bók eftir þekktan særingamann, Gabriele Amorth.
Páfinn blessaði mennina á torgi heilags Péturs. Talsmenn Vatíkansins harðneita að páfinn hafi sært djöful úr mönnunum.
Amorth segir að mennirnir hafi komið á torgið og svo tekið að ókyrrast og borið öll merki þess að vera andsetnir. Mennirnir eru í bókinni kallaðir Giovanni og Marco. Á sá fyrrnefndi að hafa sagt við aðstoðarmenn páfans, með röddu sem var ekki hans eigin, að hann væri ekki Giovanni og síðan hent sér á jörðina. Páfinn ók þá hjá og veifaði til mannfjöldans. Þá hófu Giovanni og Marco að spangóla og slefa. Páfinn hafi svo blessað mennina.
Við þetta hafi mennirnir kastast þrjá metra afturábak, segir í bók Amorth.
„Jafnvel þótt atburðinum sé rétt lýst er ekki rétt að tala um særingu,“ segir talsmaður Vatíkansins.









