Ryan Reynolds skallaði Denzel Washington

Ryan Reynolds. stækka

Ryan Reynolds. mbl.is/Cover Media

Ryan Reynold segist bara muna eftir því að skella á einhverju "stóru, dökku og dýru" sem olli því að Denzel Washington fékk glóðarauga.

Ryan leikur með Denzel í væntanlegri hasarmynd sem ber nafnið Safe House. Upptökur myndarinnar kröfðust mikillar orku og hasars og gengu þær ekki snurðulaust fyrir sig. Ofbeldisfullt bílaatriði endaði með því að Ryan gaf Denzel glóðarauga.

"Við vorum í mjög æstum slagsmálum í bíl og við vorum eiginlega út um allt," sagði Ryan í viðtali við BBC Breakfast.

"Ég fann þegar hausinn á mér skall á einhverju stóru, dökku og dýru. Það var skelfilegt."

Þegar leikarinn var spurður hvort höggið hafi verið viljandi svaraði hann í léttum tón: "Engum líkar við bílstjórann í aftursætinu."

Ryan var yfir sig hrifinn yfir því að fá að vinna með Hollywood-goðsögninni, Denzel Washington. Ryan, sem er 35 ára, sá til þess að hann væri klár í slaginn áður en hann fór á tökustað með Denzel.

"Ég hafði hitt hann einu sinni áður á viðburði fyrir nokkrum árum. Þú vilt klárlega vera með þitt á hreinu þegar þú kemur á settið. Ég held að hvaða leikari sem er, ungur sem gamall, myndi vera spenntur fyrir því leika með honum," sagði Ryan glaðbeittur.

"Hann er leikari í hæsta gæðaflokki."

Ryan er stoltur af hasarmyndinni og grínast með að áhorfendur geti misst 5 kíló bara með því að horfa á hana.

"Maður gerir alls kyns æfingar til að fullvissa sig um að stórar stjörnur fái ekki glóðarauga en augljóslega hjálpa þessar æfingar ekki," sagði Ryan.

"Það tekur þrjá daga að gera fimm mínútna slagsmálaatriði og eftir það ertu meira og minna allur blár og marinn."

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Monitor — Fleiri fréttir

Ágætt ef fólk hlekkjaði sig við húsið myndskeið

monitor mugison
17.5. Hann er með flottasta skeggið í bransanum. Hann er að vestan. Hann er með dáleiðandi rödd. Mugison fékk viðurnefnið sitt þegar hann var í skemmtiferð í Malasíu með pabba sínum og hann mun spila á Nasa á laugardaginn í allra síðasta skipti. Meira »

Reykjavik Live-hátíðin myndskeið

ReykjavikLive
12.5. Fyrsta tónlistarhátíð sumarsins hefst í næstu viku en þá hefst Reykjavik Live-hátíðin.   Meira »

Gabríel á forsíðu Monitor myndskeið

monitor gabriel
16.5. Það er ekki á hverjum degi sem grímuklæddur maður prýðir forsíðu Monitor en tónlistarmaðurinn Gabríel er forsíðufyrirsæta Monitor þessa vikuna. Nýjasta tölublaðið kemur út á morgun. Meira »

Tilbiðja Monitor á hverjum degi myndskeið

111 monitor
11.5. MonitorTV heimsótti félagsmiðstöðina Hundrað&ellefu, sem við fyrstu sýn virðist vera einhvers konar sértrúarsöfnuður helgaður Monitor. Agnes Valdimarsdóttir, fréttamaður MonitorTV, kíkti á stemninguna í miðri tilbeiðslu hjá krökkunum. Meira »

finnur.is