Veröld/Fólk
|
Veraldarfréttir
| AFP
| 2.2.2012
| 8:48
| Uppfært
9:59
Segist minnsti maður heims
Fulltrúar Heimsmetabókar Guinness ætla að fara til Nepal til að kanna hvort þar búi minnsti maður heims. 72 ára Nepali, Chandra Bahadur Dangi, segist 56 sentimetrar á hæð og vega 12 kíló.
„Við ætlum okkur að heimsækja Dangi til að mæla hæð hans,“ segir ritstjóri heimsmetabókarinnar, Craig Glenday.
Dangi var í viðtali í nepalska sjónvarpinu í gær og þar sást hann leika á als oddi og stökkva fimlega niður af bekk í almenningsgarði. Haft var eftir fjölskyldu Dangis að hann væri við góða heilsu.
Núverandi heimsmethafi er Junrey Balawing frá Filippseyjum. Hann er 59,93 sm á hæð. Hann hafði titilinn af öðrum Nepala, Khagendra Thapa Magar, sem er 67 sm á hæð. Magar gerði sér mat úr metinu og kom víða um heim opinberlega fram.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin









