Veröld/Fólk
| mbl
| 2.2.2012
| 21:51
| Uppfært
22:15
Slanga leyndist í buxnapressu
Þessi myndarlega slanga er ekki sú hin sama sem leyndist í sænsku buxnapressunni. En glæsileg er hún. mbl.is
Konu nokkurri, sem dvalist á Scandic-hótelinu í Örnsköldsvik í Svíþjóð ásamt hundi sínum, þótti einkennilegt hversu áhugasamur seppi var um buxnapressu sem var í herberginu. Konan hélt að belti væri fast í pressunni, en þegar hún aðgætti það nánar leyndist þar eins metra löng sprelllifandi slanga.
Þetta gerðist á þriðjudagskvöldið.
Konan kallaði þegar á aðstoð starfsfólks hótelsins, sem kvaddi til lögreglu. Innan tíðar tókst að handsama slönguna.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin









