Snyrtivörukóngur kvartar yfir frönskum
Fyrrverandi forstjóri franska snyrtivörurisans L'Oreal, Lindsay Owen-Jones, fer fram á að dómstólar í Frakklandi beiti sér fyrir því að sölubás, sem selur franskar kartöflur og er staðsettur skammt frá heimili hans, verði lokað. Heimili Owen-Jones er í skíðabænum Val d´Isere.
Owen-Jones segir að frá sölubásnum stafi bæði sjón- og hljóðmengun. Auk þess særir básinn og það sem þar er boðið til sölu lyktarskyn hans. Hann segir ennfremur að staðsetning sölubássins gangi í berhögg við skipulag og að hann rýri verðgildi fasteigna á staðnum.
Eigandi sölubássins, Valerie Maertens, lætur sér fátt um finnast. „Auðvitað vilja auðkýfingar ekki hafa sölubás sem selur franskar kartöflur fyrir framan híbýli sín. En sum okkar þurfa að vinna fyrir sér,“ segir hún.
„Þau kvarta yfir hávaða og lykt af frönskum kartöflum. En fólk sem vill frið og ró kaupir sér ekki íbúð við rætur skíðabrekkunnar,“ bætti Maertens við.









