Veröld/Fólk
| mbl
| 2.2.2012
| 13:26
| Uppfært
14:20
Uppselt á Jethro Tull
Ian Anderson, forsprakki Jethro Tull.
Miðar á tónleika hljómsveitarinnar Jethro Tull með Ian Anderson í fararbroddi í Hörpu hinn 21. júní næstkomandi seldust upp á sjö mínútum en miðasala hófst á hádegi í dag.
Því hefur verið samið um að sveitin haldi aukatónleika daginn eftir, 22. júní, og hefst sala á þá kl. 14 í dag í Hörpu og á midi.is, samkvæmt tilkynningu.
Jethro Tull hefur nokkrum sinnum áður komið fram á tónleikum á Íslandi. Thick as a Brick kom út 1972 og fagnar Jethro Tull 40 ára útgáfuafmæli plötunnar með tónleikaferð á þessu ári.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin









