Aparnir fá brjóstbirtu í frostinu

Þessi api á Indlandi verður að sætta sig við banana. stækka

Þessi api á Indlandi verður að sætta sig við banana. Reuters

Starfsmenn Karagandí-dýragarðsins í Kasakstan hafa brugðið á það ráð að gefa öpum í garðinum rauðvín svo þeir haldi heilsu í kuldakastinu sem gengur yfir landið.

„Við gefum öpunum vín því það veitir þeim vörn gegn sýkingum í öndunarfærum yfir vetrartímann. Það má segja að við rennbleytum þá í víni svo þeir fái ekki flensu,“ segir Svetlana Piljuk hjá dýragarðinum.

„Þegar öllu er á botninn hvolft eru prímatar alveg eins og mannfólk. Þeir njóta þess að drekka áfenga drykki. Þeim líkar það. Sumir misnota það jafnvel, og koma nokkrum sinnum að drykkjardallinum,“ bætir hún við.

Hún tekur fram að apar sem eigi von á afkvæmi megi ekki drekka vín og það sama eigi við um yngstu apana.

Svo að vínið verði girnilegra í augum apanna er söxuðum ávöxtum, hunangi, sítrónu, sykri og heitu vatni blandað í það.

Gríðarlega kalt er í Karagandí í dag, eða um 33 stiga frost.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Ostar urðu skjálfta að bráð

Parmesanostur
Í gær, 16:04 Gríðarlegt magn af parmesan- og Grana Padano-osti eyðilagðist í jarðskjálftunum á Ítalíu í nótt. Er tjónið metið á um 250 milljónir evra, 40,7 milljarða króna. Meira »

Steed Lord og smábíll

Svala Björgvinsdóttir (t.h.).
18.5. Svala Björgvinsdóttir og félagar hennar í hljómsveitinni Steed Lord koma fram í auglýsingu fyrir smábíl fyrirtækisins Smart sem sænski fataframleiðandinn WeSC sá um hönnun á. Meira »

Tileinka forsetafrúnni 1.400 ára ólífutré

Michelle Obama.
18.5. Ítalir hafa tileinkað Michelle Obama, forsetafrú Bandaríkjanna, 1.400 ára ólífutré sem er þekkt undir nafninu Drottningin. Ástæða þessa heiðurs er sögð ástríða Obama fyrir bættri heilsu fólks. Meira »

Sýnir í Winchester

Frá afhendingu styrksins úr Listasjóði Ólafar í fyrradag. Edda Heiðrún er fyrir miðju.
18.5. Edda Heiðrún Backman mun taka þátt í viðamikilli, alþjóðlegri sýningu í Winchester á Englandi í byrjun ágúst þar sem sýnd verða verk eftir hreyfihamlaða listamenn sem mála verk sín með því að halda pensli í munni eða milli táa. Meira »

finnur.is