Ekkert svekktar yfir millunni

Emilía og Unnur hafa æft saman frá 10 ára aldri. stækka

Emilía og Unnur hafa æft saman frá 10 ára aldri. Golli

Emilía Benedikta og Unnur Elísabet lentu saman í 3. sæti í Dans dans dans í lok síðasta árs. Þær standa nú í ströngu með Íslenska dansflokknum sem frumsýnir verkið Minus 16 laugardaginn 4. febrúar.

Hvers vegna ákváðuð þið að keppa í Dans dans dans? Við ákváðum að keppa til að styðja danslistina á Íslandi. Við vorum ótrúlega ánægðar með hvað þetta sýndi vel hvað það er mikið af sterkum dönsurum á Íslandi. Þetta sýndi Íslendingum hvað við eigum mikið af flottum dönsurum.

Eruð þið ýkt svekktar að hafa ekki unnið milljónina sem var í verðlaunafé fyrir fyrsta sætið? Við erum brjálaðar (hlær). Nei nei, það var ekki markmiðið með þessu heldur frekar að taka þátt í því að búa til þátt. Þetta fékk frábært áhorf og við erum ótrúlega ánægðar með að hafa átt hlut í þessu.

Hvernig er það að dansa með flokknum samanborið við það að dansa í þáttunum? Það er alveg tvennt ólíkt. Við vorum mjög stressaðar í þáttunum að vera að dansa með myndavélar alveg ofan í okkur og líka það að standa fyrir framan dómnefnd og láta dæma sig. Með dansflokknum dönsum við bara á sýningu og svo fer fólk bara heim til sín og ræðir sýninguna sín á milli þar.

Hvernig verður maður dansari í Íslenska dansflokknum? Það er mun erfiðara að komast að í dansflokknum heldur en til dæmis fyrir leikara að komast að hjá leikhúsunum af því að það er svo fátt um laus pláss. Dansarar fara í prufur hjá flokknum og það hafa til dæmis verið haldnar slíkar prufur erlendis inn í Íslenska dansflokkinn og þá sækir oft hellingur af útlenskum dönsurum um stöðu. Núna voru til dæmis að koma tveir erlendir dansarar að dansa með okkur í þessari sýningu.

Meira í Monitor. Blaðið má lesa í rafrænni útgáfu hér.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Monitor — Fleiri fréttir

Ágætt ef fólk hlekkjaði sig við húsið myndskeið

monitor mugison
17.5. Hann er með flottasta skeggið í bransanum. Hann er að vestan. Hann er með dáleiðandi rödd. Mugison fékk viðurnefnið sitt þegar hann var í skemmtiferð í Malasíu með pabba sínum og hann mun spila á Nasa á laugardaginn í allra síðasta skipti. Meira »

Reykjavik Live-hátíðin myndskeið

ReykjavikLive
12.5. Fyrsta tónlistarhátíð sumarsins hefst í næstu viku en þá hefst Reykjavik Live-hátíðin.   Meira »

Gabríel á forsíðu Monitor myndskeið

monitor gabriel
16.5. Það er ekki á hverjum degi sem grímuklæddur maður prýðir forsíðu Monitor en tónlistarmaðurinn Gabríel er forsíðufyrirsæta Monitor þessa vikuna. Nýjasta tölublaðið kemur út á morgun. Meira »

Tilbiðja Monitor á hverjum degi myndskeið

111 monitor
11.5. MonitorTV heimsótti félagsmiðstöðina Hundrað&ellefu, sem við fyrstu sýn virðist vera einhvers konar sértrúarsöfnuður helgaður Monitor. Agnes Valdimarsdóttir, fréttamaður MonitorTV, kíkti á stemninguna í miðri tilbeiðslu hjá krökkunum. Meira »

finnur.is