Veröld/Fólk
| mbl
| 3.2.2012
| 15:05
| Uppfært
18:46
Andlit norðursins tilnefnt til Edduverðlauna
Bíómyndin Eldfjall fékk flestar tilnefningar til Edduverðlaunanna 2012, fjórtán talsins, en þær voru tilkynntar í dag. Heimildarmyndin Andlit norðursins, sem fjallar um Ragnar Axelsson, ljósmyndara Morgunblaðsins, er meðal þeirra heimildamynda sem tilnefndar eru.
Í tilkynningu segir að 27 manns í fjórum valnefndum, valnefnd um leikið efni, sjónvarpsefni, heimildamyndir og fagverðlaunanefnd, hafi séð um að velja tilnefningar úr innsendum verkum en alls voru 97 verk send inn í Edduna í ár, þar af 50 sjónvarpsþættir, sem er 35% aukning frá því í fyrra.
Eldfjall er tilnefnt í nær öllum flokkum en hún keppir við Borgríki og Á annan veg um bíómynd ársins.
Aðrar tilnefningar má sjá í meðfylgjandi skjali.
|
|
Tilnefningar til Edduverðlauna |
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin









