Gibb-bróðir á batavegi
Robin Gibb, aðalsöngvari Bee Gees og einn Gibb-bræðranna lagvísu frá Ástralíu, segist hafa náð nánast fullum bata, en hann var illa haldinn af ristilkrabbameini. „Mér líður frábærlega,“ sagði hinn 62 ára gamli Gibb í viðtali á útvarpsstöð BBC.
Tvíburabróðir hans, Maurice, lést árið 2003 úr þarmasjúkdómi og yngri bróðir þeirra Andy lést 1988 eftir að hafa lengi barist við kókaínfíkn.
„Æxli greindist í ristlinum. Það var fjarlægt og ég hef verið í meðferð hjá afar færum lækni,“ sagði Gibb. „Mér líður betur en þegar ég var tíu árum yngri.“
Gibb vinnur að plötu þar sem fjallað er um Titanic-slysið, en á næsta ári eru 100 ár frá því.
Bee Gees er ein söluhæsta hljómsveit allra tíma og hafa selt meira en 200 milljónir platna. Sól þeirra reis hátt á áttunda áratugnum með diskólögunum „Stayin' Alive“ og „Night Fever“.









