Góð í jóga

Lady Gaga. stækka

Lady Gaga. mbl.is/Cover Media

Lady Gaga leitar í jóga til að koma á jafnvægi í lífi sínu og finna innri frið. Söngkonan litríka valdi Bikram-jóga og er að sögn kennara hennar með einstaka hæfileika sem hún notfærir sér í þeim tilgangi að bæta umheiminn. Hún eigi auðvelt með að gefa af sér og færa öðrum gleði, þökk sé jógafræðunum.

Jógakennarinn, Tricia Donegan, segir  í viðtali við New York Times að Lady Gaga sé einstakur nemandi. Hún sé afar gefandi og með tónlist sinni nái hún til fjöldans. Söngkonan noti hæfileika sína til að láta gott af sér leiða og styðjist við jógafræðin í öllu sínu lífi.

Donegan segir Lady Gaga vera mikla lyftistöng fyrir jóga og varpa ljósi á mikilvægi þess að tileinka sér hina fornu speki, bæði í andlegum og líkamlegum skilningi.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Sýning á verkum Dieters Roths

Verk eftir Dieter Roth.
05:30 Sýning á verkum eftir þýsk-svissneska listamanninn Dieter Roth verður opnuð í Galleríi Fold á föstudaginn kemur kl. 17-19.   Meira »

Hallveig syngur Stúlkuna á heiðinni

Hallveig Rúnarsdóttir sópransöngkona.
05:30 Sópransöngkonan Hallveig Rúnarsdóttir og píanóleikarinn Antonía Hevesi flytja söngflokkinn Stúlkuna á heiðinni eftir Edvard Grieg í Norðurljósasalnum á morgun, þriðjudag, kl. 12.15. Meira »

Tólf stunda langur gjörningur sýndur

Ragnar Kjartansson.
05:30 Myndbandsverk, sem er upptaka af tólf klukkustunda löngum óperugjörningi Ragnars Kjartanssonar, Bliss, verður sýnt í fullri lengd á tjaldi á stóra sviði Þjóðleikhússins. Meira »

Robin Gibb látinn

Robin Gibb.
00:07 Söngvarinn góðkunni Robin Gibb lést í gær, sunnudag, 62 ára að aldri. Gibb, sem var meðlimur einnar vinsælustu poppsveitar sem sögur fara af, Bee Gees, glímdi við erfið veikindi; krabbamein í ristli og lifur. Veikindin drógu hann að lokum til dauða, tæpum mánuði eftir að hann vaknaði úr dái og sýndi góð batamerki. Meira »

finnur.is