Minn tími fer í nemendafélagið

Snorri er með ljósmynda bakteríu á háu stigi. stækka

Snorri er með ljósmynda bakteríu á háu stigi. Ómar

Hvers vegna byrjaðir þú að ljósmynda? Ég hef alltaf haft áhuga á tækni og tölvum og myndavélar hafa alltaf heillað. En í byrjun árs 2009 fór ég á ljósmyndanámskeið með pabba mínum og eftir það varð ekki aftur snúið. Pabbi reyndar smitaðist ekki og datt út úr þessu fljótlega eftir námskeiðið en hann er góður í að taka fjölskyldumyndir.

Hvað þarf maður að hafa til að verða góður ljósmyndari? Maður þarf að hafa viljann. Gæði myndavélar finnst mér ekki skipta máli. Ég gat tekið ágætismyndir fyrstu tvö árin mín þótt ég væri með drasl-myndavél. Linsan finnst mér skipta meira máli. Næmt auga kemur með æfingunni sem má svo rekja aftur til viljans.

Þú ert á öðru ári í Verzlunarskólanum þar sem þú ert á náttúrufræðibraut með eðlisfræði sem aðalfag. Ertu algjör heili? Ég hafði mikinn metnað fyrir náminu í grunnskóla en eftir að ég kom í Verzló tók NFVÍ við í staðinn fyrir námið. Þannig að minn tími fer í þetta nemendafélag. Ég næ alveg prófunum og svona en ég er ekkert á leið á Ólympíuleikana í eðlisfræði. Og þó. Það getur allt gerst.

Meira í Monitor. Blaðið má lesa í rafrænni útgáfu hér.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Monitor — Fleiri fréttir

Ágætt ef fólk hlekkjaði sig við húsið myndskeið

monitor mugison
17.5. Hann er með flottasta skeggið í bransanum. Hann er að vestan. Hann er með dáleiðandi rödd. Mugison fékk viðurnefnið sitt þegar hann var í skemmtiferð í Malasíu með pabba sínum og hann mun spila á Nasa á laugardaginn í allra síðasta skipti. Meira »

Reykjavik Live-hátíðin myndskeið

ReykjavikLive
12.5. Fyrsta tónlistarhátíð sumarsins hefst í næstu viku en þá hefst Reykjavik Live-hátíðin.   Meira »

Gabríel á forsíðu Monitor myndskeið

monitor gabriel
16.5. Það er ekki á hverjum degi sem grímuklæddur maður prýðir forsíðu Monitor en tónlistarmaðurinn Gabríel er forsíðufyrirsæta Monitor þessa vikuna. Nýjasta tölublaðið kemur út á morgun. Meira »

Tilbiðja Monitor á hverjum degi myndskeið

111 monitor
11.5. MonitorTV heimsótti félagsmiðstöðina Hundrað&ellefu, sem við fyrstu sýn virðist vera einhvers konar sértrúarsöfnuður helgaður Monitor. Agnes Valdimarsdóttir, fréttamaður MonitorTV, kíkti á stemninguna í miðri tilbeiðslu hjá krökkunum. Meira »

finnur.is