Veröld/Fólk
| mbl
| 3.2.2012
| 22:52
Risakýr réðst á bónda
Kýr eru misjafnlega skapi farnar. Sumar eru blíðar og rólegar, öfugt við risakúna í Georgíuríki. Eggert Jóhannesson
Bóndi í Georgíuríki í Bandaríkjunum komst í hann krappan þegar rúmlega 400 kílóa þung kýr stangaði hann. Bóndinn, sem heitir Raymond Parks, segir að nokkur rifbeina hans hafi brotnað við árásina.
Kýrin ýtti honum að gaddavírsgirðingu og hélt Parks að hann myndi ekki lifa þetta af. Hann gat seilst í skammbyssu sem hann bar og skaut þremur skotum að dýrinu. Kýrin lötraði þá í hægðum sínum á brott.
Litlu síðar kom dýralæknir á vettvang og enduðu þar með lífdagar kýrinnar. Parks, sem er á áttræðisaldri, segir að þetta atvik hafi orðið til þess að hann hafi ákveðið að hætta búskap.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin









