Skikkaður í síðar nærbuxur
Allt ætlaði um koll að keyra í miðborg Lundúna í gær þegar ný undirfatalína Davíðs Beckhams fyrir H&M kom í verslanir. Í auglýsingaherferðinni samfara nýju línunni má sjá knattspyrnugoðið í allri sinni dýrð í engu nema stuttum, þröngum nærbuxum. Veruleikinn er þó allur annar því heima fyrir klæðist Beckham alltaf síðum nærbuxum að ósk konu sinnar Viktoríu sem hefur mjög ákveðnar skoðanir á útliti hans.
Sjálfur kýs Beckham að ganga dagsdaglega um í þröngum nærbuxum, í anda nýju undirfatalínunnar sinnar. Viktoría er að sögn mjög áhugasöm um samstarf hans og tískurisans H&M og hefur ekkert á móti því að eiginmaðurinn birtist klæðlítill í auglýsingum. En þegar heim er komið vill hún frekar hafa hann í gamaldags síðum nærbuxum.
Í samtali við dagblaðið The Mirror kveðst fótboltakappinn vera sáttur við tilmæli eiginkonunnar, síðar nærbuxur séu hlýjar og þægilegar og því fari hann að hennar óskum.









