Slökkviliðsmaður reddaði málunum
Indverskur slökkviliðsmaður tók að sér að leiðbeina flugvél Jet Airways til lendingar á flugvellinum á Indlandi þegar flugumferðarstjórar mættu ekki til vinnu. Atvikið átti sér stað 9. janúar sl.
Sextíu voru um borð í flugvélinni sem flaug frá Hyderabad til Andhra Pradesh, að því er segir í frétt á vef breska ríkisútvarpsins.
Vélin lenti á Tirupati flugvellinum. Fram kemur á vef BBC að þar sé ekkert ratsjárkerfi sem aðstoði við lendingu og því verði flugmenn að treysta á leiðsögn og upplýsingar flugumferðarstjóra. En þeir upplýsa flugmenn m.a. um veður, ástand vallarins og þá veita þeir heimild til lendingar.
Aðeins lenda um sjö flugvélar á Tirupati á hverjum degi. Þar lenda hins vegar ferðamenn sem vilja heimsækja Tirumala hofið, sem er einn af heilögustu helgidómum hindúa.
Flugumferðarstjórarnir áttu að mæta til vinnu kl. 7 um morguninn. Þegar þeir voru ekki mættir bað aðstoðarframkvæmdastjóri flugvallarins slökkviliðsmanninn, sem talar ekki góða ensku, til að taka við talstöðinni í flugturninum.
Hann er sagður hafa veitt flugmönnum nauðsynlegar upplýsingar í um 40 mínútur, eða þar til flugumferðarstjóri mætti loks á vaktina.
Flugmálayfirvöld á Indlandi hafa hafið rannsókn á málinu.









