Syngur fyrir drottninguna

Susan Boyle varð fræg á einni nóttu. stækka

Susan Boyle varð fræg á einni nóttu. SCANPIX DENMARK

Þegar skoska söngkonan Susan Boyle steig á sviðið í keppninni Britain's Got Talent vorið 2009 hefur tæpast hvarflað að henni að hún myndi vinna keppnina og verða heimsfræg. Telja má víst að hún hefði aldrei trúað því þá að hún ætti aukinheldur eftir að syngja fyrir sjálfa Bretadrottningu en Boyle hefur nú boðist að koma fram við hátíðahöld í tilefni af 60 ára setu drottningar á valdastóli.

Elísabet var krýnd drottning yfir Bretlandi 6. febrúar 1952 og verður afmælisins minnst þar í landi með ýmsum hætti. Boyle mun koma fram á hestasýningunni víðfrægu Royal Windsor Horse Show í byrjun maí en sýningin er stærsta sinnar tegundar á Bretlandi og hefur verið haldin í 65 ár. Boyle er að vonum spennt yfir þessu konunglega tækifæri sem sjóvarpsáhorfendur um allan heim geta fylgst með heima í stofu, að því er haft er eftir heimildamanni Sun.

Margt hefur breyst frá því að Susan Boyle steig á svið í keppninni Britain´s Got ...

Margt hefur breyst frá því að Susan Boyle steig á svið í keppninni Britain´s Got Talent vorið 2009.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Sýning á verkum Dieters Roths

Verk eftir Dieter Roth.
05:30 Sýning á verkum eftir þýsk-svissneska listamanninn Dieter Roth verður opnuð í Galleríi Fold á föstudaginn kemur kl. 17-19.   Meira »

Hallveig syngur Stúlkuna á heiðinni

Hallveig Rúnarsdóttir sópransöngkona.
05:30 Sópransöngkonan Hallveig Rúnarsdóttir og píanóleikarinn Antonía Hevesi flytja söngflokkinn Stúlkuna á heiðinni eftir Edvard Grieg í Norðurljósasalnum á morgun, þriðjudag, kl. 12.15. Meira »

Tólf stunda langur gjörningur sýndur

Ragnar Kjartansson.
05:30 Myndbandsverk, sem er upptaka af tólf klukkustunda löngum óperugjörningi Ragnars Kjartanssonar, Bliss, verður sýnt í fullri lengd á tjaldi á stóra sviði Þjóðleikhússins. Meira »

Robin Gibb látinn

Robin Gibb.
00:07 Söngvarinn góðkunni Robin Gibb lést í gær, sunnudag, 62 ára að aldri. Gibb, sem var meðlimur einnar vinsælustu poppsveitar sem sögur fara af, Bee Gees, glímdi við erfið veikindi; krabbamein í ristli og lifur. Veikindin drógu hann að lokum til dauða, tæpum mánuði eftir að hann vaknaði úr dái og sýndi góð batamerki. Meira »

finnur.is