Þriðjungur á þorrablót um helgina
Þriðjungur Skagfirðinga sækir þorrablót annað kvöld ef marka má miðapantanir á þau þrjú sem haldin verða í Skagafirði. Íbúar Hóla- og Viðvíkurhrepps verða með sitt blót í Höfðaborg Hofsósi, Seyluhreppingar í Miðgarði og Sauðkrækingar í Íþróttahúsinu á Króknum. Samkvæmt heimildum Feykis munu vel yfir 1.300 manns sitja við trog og blóta þorrann en það mun vera um 33% íbúa héraðsins.
Feykir hefur eftir Stefáni Vagni Stefánssyni yfirlögregluþjóni á Sauðárkróki að viðbúnaður lögreglu verði nægur ef á þarf að halda enda hafa þorrablótsskemmtanir Skagfirðinga farið afskaplega friðsamlega fram undanfarin ár að hans mati.
Samkvæmt upplýsingum frá miðasölufólki blótanna er enn hægt að næla sér í miða en þó eru einhverjar takmarkanir á hvað megi hleypa í húsin. Á Sauðárkróki var búið að selja yfir 560 miða um hádegisbilið og því aðeins um 40 miðar eftir, ríflega 450 miðar eru seldir í Miðgarð og í Höfðaborg eru rúmlega 300 manns búnir að skrá sig.









