Van Halen kemur saman aftur

Hin goðsagnakennda rokkhljómsveit Van Halen, með David Lee Roth við hljóðnemann, hyggur á hljómleikaferðalag um Bandaríkin á árinu. Þeir gáfu háttsettum innan tónlistargeirans forsmekkinn af því sem koma skal í Los Angeles á dögunum.

Fyrstu hljómleikar Van Halen fara fram 18. febrúar nk. en að auki hyggst sveitin gefa út sína fyrstu hljómskífu síðan platan 1984 kom út.

Af öðrum fréttum úr heimi fræga fólksins má nefna, að Stjórinn sjálfur, Bruce Springsteen, kemur fram á Grammy-verðlaunahátíðinni síðar í þessum mánuði ásamt hljómsveit sinni E Street Band. Springsteen bætist þar með í hóp Adele, Coldplay, Pauls McCartneys og Rihönnu svo aðeins fáir séu nefndir.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Sýning á verkum Dieters Roths

Verk eftir Dieter Roth.
05:30 Sýning á verkum eftir þýsk-svissneska listamanninn Dieter Roth verður opnuð í Galleríi Fold á föstudaginn kemur kl. 17-19.   Meira »

Hallveig syngur Stúlkuna á heiðinni

Hallveig Rúnarsdóttir sópransöngkona.
05:30 Sópransöngkonan Hallveig Rúnarsdóttir og píanóleikarinn Antonía Hevesi flytja söngflokkinn Stúlkuna á heiðinni eftir Edvard Grieg í Norðurljósasalnum á morgun, þriðjudag, kl. 12.15. Meira »

Tólf stunda langur gjörningur sýndur

Ragnar Kjartansson.
05:30 Myndbandsverk, sem er upptaka af tólf klukkustunda löngum óperugjörningi Ragnars Kjartanssonar, Bliss, verður sýnt í fullri lengd á tjaldi á stóra sviði Þjóðleikhússins. Meira »

Robin Gibb látinn

Robin Gibb.
00:07 Söngvarinn góðkunni Robin Gibb lést í gær, sunnudag, 62 ára að aldri. Gibb, sem var meðlimur einnar vinsælustu poppsveitar sem sögur fara af, Bee Gees, glímdi við erfið veikindi; krabbamein í ristli og lifur. Veikindin drógu hann að lokum til dauða, tæpum mánuði eftir að hann vaknaði úr dái og sýndi góð batamerki. Meira »

finnur.is