Drottning í sextíu ár

Það stóð aldrei til að Elísabet Alexandra María, elsta dóttir hertogans af York myndi leika sérstaklega stórt hlutverk í bresku konungsfjölskyldunni. En röð atburða varð til þess að aðeins 27 ára gömul var hún krýnd drottning.

Þegar hún fæddist í apríl árið 1926 var föðurbróðir hennar krónprins breska konungsveldisins. En er röðin kom að frændanum ákvað hann að staldra aðeins stutt við á valdastóli og afsalaði sér krúnunni til að giftast ástkonu sinni. Sú hét Wallis Simpson, bandarísk og tvífráskilin.

Þá var allt önnur og ný staða komin upp og faðir Elísabetar gerður að konungi. Elísabet varð krónprinsessa.

Faðir hennar lést í febrúar árið 1952. Elísabet var þá stödd lengst upp í fjöllum í nýlendunni Keníu en þangað voru henni fluttar fréttirnar.

Í júní sama ár var hún krýnd drottning. Nokkuð var gagnrýnt í fyrstu hversu ung og óreynd hún væri en ekki leið á löngu þar til þjóðin tók hana í sátt.

Hún og eiginmaður hennar, Philip prins, eignuðust fjögur börn. Framtíðin virtist björt fyrir breska konungsveldið. Konungsfjölskyldan var mjög í sviðsljósinu og tímarnir breyttust hratt. Tvö hjónabönd í stórfjölskyldunni fóru út um þúfur og ekki dró úr athygli fjölmiðla er sjálfur ríkisarfinn, Karl, skildi við eiginkonuna Díönu að borði og sæng.

Ofan á allt saman skemmdist svo eftirlætisíverustaður drottningar, Windsor-kastali, í eldsvoða. Kallaði Elísabet árið 1992 „annus horribilis“, eða hörmulega árið.

En 21. öldin byrjar farsællega hjá konungsfjölskyldunni. Vilhjálmur prins, sonur Karls, gekk að eiga Kate Middleton á síðasta ári og er talið að tveir milljarðar manna hafi fylgst með brúðkaupinu í sjónvarpi.

Elísabet hefur reynst frumkvöðull á ýmsum sviðum. Hún er sú fyrsta í sinni fjölskyldu til að fara í opinbera heimsókn til páfans og sú fyrsta til að fara í opinbera heimsókn til Írlands síðan það hlaut sjálfstæði árið 1921. Þá hefur hún hitt alla forseta Bandaríkjanna frá því hún tók við völdum fyrir utan Lyndon B. Johnson.

Drottningin er nú 86 ára gömul og er enn í fullu fjöri. Hún hefur ríkt í Bretlandi í 60 ár en hefur þó ekki setið lengst. Metið á kynsystir hennar og langalangamma eiginmannsins, Viktoría drottning.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Sýning á verkum Dieters Roths

Verk eftir Dieter Roth.
05:30 Sýning á verkum eftir þýsk-svissneska listamanninn Dieter Roth verður opnuð í Galleríi Fold á föstudaginn kemur kl. 17-19.   Meira »

Hallveig syngur Stúlkuna á heiðinni

Hallveig Rúnarsdóttir sópransöngkona.
05:30 Sópransöngkonan Hallveig Rúnarsdóttir og píanóleikarinn Antonía Hevesi flytja söngflokkinn Stúlkuna á heiðinni eftir Edvard Grieg í Norðurljósasalnum á morgun, þriðjudag, kl. 12.15. Meira »

Tólf stunda langur gjörningur sýndur

Ragnar Kjartansson.
05:30 Myndbandsverk, sem er upptaka af tólf klukkustunda löngum óperugjörningi Ragnars Kjartanssonar, Bliss, verður sýnt í fullri lengd á tjaldi á stóra sviði Þjóðleikhússins. Meira »

Robin Gibb látinn

Robin Gibb.
00:07 Söngvarinn góðkunni Robin Gibb lést í gær, sunnudag, 62 ára að aldri. Gibb, sem var meðlimur einnar vinsælustu poppsveitar sem sögur fara af, Bee Gees, glímdi við erfið veikindi; krabbamein í ristli og lifur. Veikindin drógu hann að lokum til dauða, tæpum mánuði eftir að hann vaknaði úr dái og sýndi góð batamerki. Meira »

finnur.is