FBI fór íbúðavillt

FBI lögregluskjöldur. stækka

FBI lögregluskjöldur.

Kona í Fitchburg í Massachusetts og þriggja ára gömul dóttir hennar fengu áfall þegar keðjusög var skyndilega beitt á hurð að íbúð þeirra. Stjarfar af skelfingu horfðu þær á gjörninginn.

Þegar hurðin féll var hrópað: „Leggist á gólfið, þetta er alríkislögreglan.“ Mæðgurnar létu ekki segja sér það tvisvar. „Þið farið íbúðavillt, þið farið íbúðavillt,“ hrópaði aumingja konan en var svarað með starandi byssuhlaupi.

Eftir japl, jaml og fuður gerði alríkislögreglan (FBI) sér hins vegar grein fyrir því að konan hafði á réttu að standa, meintur fíkniefnasali bjó í næstu íbúð í stigaganginum.

FBI hefur beðið mæðgurnar velvirðingar og greitt fyrir skemmdirnar.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Lesa blaðið hér
Ekki með áskrift?
Skoða áskriftarleiðir
  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Ostar urðu skjálfta að bráð

Parmesanostur
Í gær, 16:04 Gríðarlegt magn af parmesan- og Grana Padano-osti eyðilagðist í jarðskjálftunum á Ítalíu í nótt. Er tjónið metið á um 250 milljónir evra, 40,7 milljarða króna. Meira »

Steed Lord og smábíll

Svala Björgvinsdóttir (t.h.).
18.5. Svala Björgvinsdóttir og félagar hennar í hljómsveitinni Steed Lord koma fram í auglýsingu fyrir smábíl fyrirtækisins Smart sem sænski fataframleiðandinn WeSC sá um hönnun á. Meira »

Tileinka forsetafrúnni 1.400 ára ólífutré

Michelle Obama.
18.5. Ítalir hafa tileinkað Michelle Obama, forsetafrú Bandaríkjanna, 1.400 ára ólífutré sem er þekkt undir nafninu Drottningin. Ástæða þessa heiðurs er sögð ástríða Obama fyrir bættri heilsu fólks. Meira »

Sýnir í Winchester

Frá afhendingu styrksins úr Listasjóði Ólafar í fyrradag. Edda Heiðrún er fyrir miðju.
18.5. Edda Heiðrún Backman mun taka þátt í viðamikilli, alþjóðlegri sýningu í Winchester á Englandi í byrjun ágúst þar sem sýnd verða verk eftir hreyfihamlaða listamenn sem mála verk sín með því að halda pensli í munni eða milli táa. Meira »

finnur.is