Geysir Records með útgáfuveislu
Raftónlistarútgáfan Geysir Records slær upp útgáfuveislu á Nasa við Austurvöll í kvöld og rennur 30% af miðasölunni til krabbameinssjúkra barna.
Geysir Records er ný raftónlistarútgáfa og í kvöld á að fagna útgáfu smáskífunnar Adumu EP með sveitinni Kamara frá Hollandi.
Geysir Records var hugarfóstur Ricardo Gomez og Óðins Kára Karlssonar, en þeir vildu stofna tónlistarútgáfu sem sérhæfir sig að því að að gefa út raftónlist fyrir íslenska og erlenda tónlistarmenn.
Nú þegar hefur Geysir Records gefið út þrjár smáskífur eftir tónlistarmennina Pavilion og Balrock frá Íslandi og Tex Rec frá Bosníu.
Nú líður að næstu útgáfu en það er önnur smáskífa frá Balrock og ein frá Kamara.
Að því tilefni er Kamara komin til Íslands en auk þeirra kemur m.a. í kvöld fram plötusnúðurinn Leif Spaghetti frá Svíþjóð sem og íslenskir plötusnúðar og raftónlistarmenn; Hugarástand, Oculus, Exos, A.T.L og SixPence.
Kamara er stofnuð árið 2010. Hún spilar „Tech-House“ með áhrifum frá afrískri og austurlenskri tónlist, segir Óðinn Kári Karlsson, einn aðstandenda útgáfunnar.
Húsið opnar kl. 23.









