Of feit fyrir fyrirsætusamning

Tyra Banks er stofnandi þáttanna Next Top Model sem eru sýndir um allan heim. stækka

Tyra Banks er stofnandi þáttanna Next Top Model sem eru sýndir um allan heim. Reuters

Stúlka sem tók þátt í og vann fyrirsætukeppnina Holland's Next Top Model hefur höfðað mál á hendur umboðsskrifstofunni Elite þar sem hún hefur ekki fengið greiddan að fullu samning sem hún vann til í keppninni. Skrifstofan segir hana of feita. Þá hefur hún misst titilinn.

Ananda Marchildon vann fyrirsætukeppnina sem sýnd er í sjónvarpi, árið 2008, þá 21 árs gömul. Að launum átti hún að fá samning hjá Elite upp á rúmar 12 milljónir króna. Hún segist hins vegar aðeins hafa fengið brot af þeim peningum eða um 1,6 milljónir króna.

Marchildon segir að Elite hafi sagt sér upp þegar ár var eftir af samningstímanum og ástæðan: Mjaðmir hennar voru of breiðar, þ.e. yfir þau mjaðmamörk sem Elite setur sem eru 87,63 sentímetrar. Í frétt Telegraph um málið segir að meðalmjaðmabreidd evrópskra kvenna sé um 100 sm.

Lögmenn Marchildon segja að umboðsskrifstofan ætti að vinna með henni áfram í stað þess að reyna að þröngva henni til að léttast. Þeir ættu að taka henni eins og hún er - og var á þeim tíma sem hún vann keppnina. Auk þess væri það ekki fræðilegur möguleiki fyrir hana að komast undir mjaðmamörk Elite, jafnvel þótt hún færi á gríðarlegan megrunarkúr.

Elite hefur svarað gagnrýninni og segir lögmaður fyrirtækisins að „það hafi reynst ómögulegt að finna fyrirsætustörf handa Marchildon þar sem hún er ekki í laginu eins og ætlast er til“.

Von er á niðurstöðu í dómsmálinu í næsta mánuði.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk, Veraldarfréttir — Fleiri fréttir

Ostar urðu skjálfta að bráð

Parmesanostur
Í gær, 16:04 Gríðarlegt magn af parmesan- og Grana Padano-osti eyðilagðist í jarðskjálftunum á Ítalíu í nótt. Er tjónið metið á um 250 milljónir evra, 40,7 milljarða króna. Meira »

Steed Lord og smábíll

Svala Björgvinsdóttir (t.h.).
18.5. Svala Björgvinsdóttir og félagar hennar í hljómsveitinni Steed Lord koma fram í auglýsingu fyrir smábíl fyrirtækisins Smart sem sænski fataframleiðandinn WeSC sá um hönnun á. Meira »

Tileinka forsetafrúnni 1.400 ára ólífutré

Michelle Obama.
18.5. Ítalir hafa tileinkað Michelle Obama, forsetafrú Bandaríkjanna, 1.400 ára ólífutré sem er þekkt undir nafninu Drottningin. Ástæða þessa heiðurs er sögð ástríða Obama fyrir bættri heilsu fólks. Meira »

Sýnir í Winchester

Frá afhendingu styrksins úr Listasjóði Ólafar í fyrradag. Edda Heiðrún er fyrir miðju.
18.5. Edda Heiðrún Backman mun taka þátt í viðamikilli, alþjóðlegri sýningu í Winchester á Englandi í byrjun ágúst þar sem sýnd verða verk eftir hreyfihamlaða listamenn sem mála verk sín með því að halda pensli í munni eða milli táa. Meira »

finnur.is