Ben Gazzara látinn

Ben Gazzara. stækka

Ben Gazzara. Reuters

Bandaríski leikarinn Ben Gazzara er látinn, 81 árs að aldri. Gazzara lést á sjúkrahúsi á Manhattan í New York en hann þjáðist af krabbameini í brisi.

Gazzara lék bæði á sviði og í kvikmyndum og var þekktur  fyrir að leika harðsvíraða glæpamenn, m.a. í myndinni Anatomy of a Murder árið 1959, og Capone árið 1975 þar sem hann lék Al Capone. Hann lék einnig í myndinni The Big Lebowski, sem Cohenbræður gerðu árið 1998. 

Gazzara fæddist árið 1930 en hann var sonur ítalskra innflytjenda. Hann hóf snemma að leika á sviði og árið 1955 lék hann í fyrstu uppfærslunni á leikritinu Cat on a Hot Tin Roof eftir Tennessee Williams.

Gazzara var þríkvæntur en eftirlifandi eiginkonu sinni, Elke Krivatand, kvæntist hann árið 1982.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Veröld/Fólk — Fleiri fréttir

Sýning á verkum Dieters Roths

Verk eftir Dieter Roth.
05:30 Sýning á verkum eftir þýsk-svissneska listamanninn Dieter Roth verður opnuð í Galleríi Fold á föstudaginn kemur kl. 17-19.   Meira »

Hallveig syngur Stúlkuna á heiðinni

Hallveig Rúnarsdóttir sópransöngkona.
05:30 Sópransöngkonan Hallveig Rúnarsdóttir og píanóleikarinn Antonía Hevesi flytja söngflokkinn Stúlkuna á heiðinni eftir Edvard Grieg í Norðurljósasalnum á morgun, þriðjudag, kl. 12.15. Meira »

Tólf stunda langur gjörningur sýndur

Ragnar Kjartansson.
05:30 Myndbandsverk, sem er upptaka af tólf klukkustunda löngum óperugjörningi Ragnars Kjartanssonar, Bliss, verður sýnt í fullri lengd á tjaldi á stóra sviði Þjóðleikhússins. Meira »

Robin Gibb látinn

Robin Gibb.
00:07 Söngvarinn góðkunni Robin Gibb lést í gær, sunnudag, 62 ára að aldri. Gibb, sem var meðlimur einnar vinsælustu poppsveitar sem sögur fara af, Bee Gees, glímdi við erfið veikindi; krabbamein í ristli og lifur. Veikindin drógu hann að lokum til dauða, tæpum mánuði eftir að hann vaknaði úr dái og sýndi góð batamerki. Meira »

finnur.is