Veröld/Fólk
| AFP
| 5.2.2012
| 15:00
| Uppfært
20:13
Drottning fór í kirkju
Elísabet II Englandsdrottning og eiginmaður hennar, Filippus prins, sóttu messu í þorpi skammt frá Sandringham-höll í morgun, en á morgun eru 60 ár frá því að Elísabet tók við völdum af föður sínum Georg VI.
Eftir messu tók drottning við blómum frá börnum í þorpinu.
Filippus virtist við góða heilsu, en hann fór í hjartaaðgerð fyrir skömmu.
Lítið verður um hátíðahöld á morgun, en næstu mánuðina verður 60 ára valdatíð drottningar, sem kallast demantsafmæli, fagnað með margvíslegum hætti. Drottningin og Filippus munu ferðast um Bretland í næsta mánuði og heimsækja þegna sína, en aðrir meðlimir konungsfjölskyldunnar munu fara í nokkurra vikna heimsreisu.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin









