Veröld/Fólk
| mbl
| 5.2.2012
| 21:42
Erfið tíð hjá heimilislausum hundum
Kuldakastið, sem nú gengur yfir Evrópu, hefur áhrif á fleiri en menn. Íbúar borgarinnar Sarajevo í Bosníu hafa miklar áhyggjur af þeim fjölmörgu flækingshundum sem búa á götum borgarinnar.
Margir borgarbúar færa hundunum mat og drykk, en talið er að um 3.000 heimilislausir hundar séu í borginni. Borgaryfirvöld hafa í mörg ár reynt að safna fé til að geta byggt skýli fyrir hundana.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin









