Veröld/Fólk
| mbl
| 5.2.2012
| 15:57
| Uppfært
16:16
Fertug krónprinsessa
Mary, krónprinsessa Danmerkur, er fertug í dag. Hún nýtur mikillar hylli meðal Dana og þykir standa sig með prýði í hlutverki sínu.
Hún kynntist Friðriki krónprins á Ólympíuleikunum í Sydney í Ástralíu árið 2000. Þau trúlofuðu sig árið 2003 og giftu sig ári síðar, hinn 14. maí 2004 í Frúarkirkju í Kaupmannahöfn. Þau eiga fjögur börn; Kristján 6 ára, Isabellu 4 ára og tvíburana Vincent og Josephine sem eru eins árs.
Mary vinnur að margvíslegum málefnum, einkum félags- og heilbrigðismálum. Einnig hefur hún starfað að mannúðarmálefnum.
Á vefsíðu dönsku konungsfjölskyldunnar er ítarleg umfjöllun um afmælisbarnið.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin









